Dikembe Mutombo látinn
NBA goðsögnin Dikembe Mutombo er látinn 58 ára að aldri eftir baráttu við heilaæxli. NBA deildin greinir frá þessu í yfirlýsingu.
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.
NBA goðsögnin Dikembe Mutombo er látinn 58 ára að aldri eftir baráttu við heilaæxli. NBA deildin greinir frá þessu í yfirlýsingu.
New York Knicks og Minnesota Timberwolves opna leikmannamarkað NBA-deildarinnar í körfubolta með sannkölluðum risaskiptum. Miðherjinn Karl-Anthony Towns er á leið New York á meðan Minnesota fær Julius Randle og Donte DiVincenzo ásamt fyrsta valrétti í nýliðavalinu.
Körfuboltamaðurinn Derrick Rose hefur lagt skóna á hilluna. Hann er sá yngsti sem hefur verið valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar.
Körfuboltakonan Caitlin Clark heillar flesta sem á hana horfa enda bæði frábær skotmaður og frábær sendingamaður. Það er einkum henni að þakka að áhorf hefur stóraukist á kvennakörfuna í Bandaríkjunum.
Al Attles, sem gerði Golden State Warriors að NBA-meisturum 1975, er látinn, 87 ára að aldri.
Þýski körfuboltamaðurinn Dennis Schröder var ekki hrifinn af færslu Kevin Durant á samfélagsmiðlum eftir að bandaríska landsliðið tryggði sér Ólympíugullið í París.
Bandarískir fjölmiðlar fjalla nú um þann þráðláta orðróm að Jeff Bezos, eigandi Amazon, ætli sér að kaupa NBA körfuboltaliðið Boston Celtics.
Jaylen Brown ætlar ekkert að slaka á þrátt fyrir velgengnina á síðustu leiktíð. Bakvörðurinn hefur vakið athygli fyrir óvenjulegan undirbúning sinn fyrir komandi leiktíð í NBA deildinni í körfubolta.
Myndband með körfuboltagoðsögninni Michael Jordan vakti athygli fyrir meira en tveimur áratugum síðan en fór síðan aftur á flug á dögunum þegar fólk áttaði sig á því hver var þarna með honum.
Gamla körfuboltastjarnan og sjónvarpsmaðurinn Charles Barkley segist hafa gefið eftir háar fjárhæðir til að halda tryggð við TNT sjónvarpsstöðina.
Franski körfuboltamaðurinn Guerschon Yabusele var ein af spútnikstjörnum körfuboltakeppni Ólympíuleikanna í París en frammistaða hans átti mikinn þátt í að Frakkarnir fóru alla leið í gullleikinn.
Körfuboltamaðurinn Tyrese Haliburton var hluti af sigurliði Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum og fékk að sjálfsögðu gullmedalíu, þrátt fyrir að hafa fengið fá tækifæri á leikunum.
Körfuboltamaðurinn Steven Adams hefur greint frá því hvað hann gerði til að losna við ruslatal Kevins Garnett, eins þekktasta kjaftasksins í sögu NBA.
Steve Kerr, þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í körfubolta sem nú stendur í ströngu á Ólympíuleikunum í París, fékk gagnrýni úr óvæntri átt; frá leikmanni sínum í Golden State Warriors.
Ný stytta af bandaríska körfuboltamanninum Kobe Bryant og dóttur hans Gianna „Gigi“ Bryant var afhjúpuð við einkaathöfn í Los Angeles í gær. Hún verður síðan fyrst aðgengileg almenningi í dag.
LeBron James er einn besti körfuboltamaður allra tíma. Hann er hins vegar ekki merkilegur dansari, allavega ef marka má dóttur hans.
Á morgun verður stytta af Kobe Bryant og dóttur hans, Giönnu (Gigi), afhjúpuð fyrir utan heimavöll Los Angeles Lakers, Crypto.com Arena.
Charles Barkley, einn af fjórmenningunum í Insinde the NBA teyminu á TNT sjónvarpsstöðinni, hefur sent frá sér yfirlýsingu um yfirtöku Disney, NBC og Amazon Prime Video á sjónvarpssamningum NBA deildarinnar.
Eins og við var búist er Russell Westbrook genginn til liðs við Denver Nuggets. Westbrook, sem er 36 ára að verða, semur til tveggja ára.
NBA deildin í körfubolta ætlar að segja skilið við margra áratuga samstarf sitt við TNT sjónvarpsstöðina en þetta varð endanlega ljóst þegar gengið var frá sjónvarpssamningum við Disney, NBC og Amazon Prime Video í gær.
NBA liðið Sixers hefur átt heima í borginni Philadelphiu frá árinu 1963 en nú gæti orðið breyting á því.
Spencer Dinwiddie hefur ákveðið að færa sig um set og spila með Dallas Mavericks í NBA-deildinni á komandi leiktíð eftir að hafa skipt yfir til Los Angeles Lakers fyrr á þessu ári.
Stjörnuleikur WNBA deildarinnar fór fram um helgina en þar mætti stjörnulið deildarinnar landsliðinu en sú hefð hefur skapast að landsliðið mæti til leiks á ólympíuári.
Russell Westbrook er án félags, aðeins tveimur dögum eftir að LA Clippers skiptu honum til Utah Jazz. Tíðindin ættu þó ekki að koma neinum á óvart en Westbrook er sagður vera á leið til Denver Nuggets um leið og færi gefst.