Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins
Bergsveinn Ólafsson doktorsnemi og frumkvöðull hefur verið að notast við Neubria vörurnar með einstökum árangri en hann upplifir aukinn stuðning í daglegum verkum.
Allt um heilsu, hreyfingu og hollan mat
Bergsveinn Ólafsson doktorsnemi og frumkvöðull hefur verið að notast við Neubria vörurnar með einstökum árangri en hann upplifir aukinn stuðning í daglegum verkum.
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir er að verða sextug og er ekki með nein grá hár og eiginlega ekki neinar hrukkur.
Góð húðumhirða er ekki síður mikilvæg fyrir karlmenn. Reguleg húðrútína getur hjálpað til við að fyrirbyggja ótímabær merki um öldrun, bætta áferð hennar og jafnað húðlit.
Hafdís Ólafsdóttir og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir eru báðar klínískir dáleiðendur og sérfræðingar í Hugrænni endurforritun frá Dáleiðsluskóla Íslands.
Katrín Lilja Sigurðardóttir hefur verið að taka Nutrilenk Gold í rúm 20 ár við eymslum og stirðleika í hné, baki og mjöðmum og sér ekki fyrir að taka pásu eða hætta því.
Ráðstefnan Dýr í starfi með fólki verður haldin í Reykjadal í Mosfellsbæ laugardaginn 14. september 2024. Á ráðstefnunni segja bæði innlendir og erlendir sérfræðingar frá starfi sínu með hundum, hestum og köttum á víðum vettvangi.
„Viðburðurinn hófst ekki fyrr en klukkan átta um kvöldið en klukkan rétt rúmlega sjö streymdu konur einfaldlega á staðinn þannig að við hugsuðum bara með okkur Vá! Hvað mætingin er góð,“ segir Sóley Björg Jóhannsdóttir varaformaður UAK um viðburð sem félagið stóð fyrir síðastliðið þriðjudagskvöld.
„Ég held að uppeldið hafi skipt þar miklu. Foreldrar mínir hafa alltaf sagt að ég gæti gert allt sem ég vil. Sem þó var ekkert alltaf auðvelt. Til dæmis ætlaði ég að verða læknir en ákvað að taka pásu í háskóla og stefna að því að verða atvinnumaður í CrossFit,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í CrossFit og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Dottir Skin.
Edda Dungal hefur tekið inn Hair Volume í nokkur ár en hún missti allt hár eftir lyfjameðferð.
Umferðin er orðin þyngri, rigningin heldur áfram að heiðra okkur með nærveru sinni, laufin falla af trjánum, litapallettan breytist, skólabjöllurnar hringja og rútínan tekur yfir. Haustið er mætt í allri sinni dýrð og er árstíðin gjarnan í fararbroddi hinna þegar það kemur að tískubylgjum og nýjum stefnum og straumum.
Besti tíminn til að stunda líkamsrækt er síðdegis en að stunda of ákafa hreyfingu stuttu fyrir háttatíma getur orðið til þess að viðkomandi nær ekki að sofna. Þetta segir svefnsérfræðingurinn Erla Björnsdóttir.
Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar segir heilsureglur fyrir haustið verða að vera hnitmiðaðar og einfaldar. Hún er sjálf með fimm reglur sem hún hefur sett sér og segir þær hafa gert mikið fyrir hennar vellíðan.
Erla Ósk hafði verið að finna fyrir einkennum sem oft stafa af skertri lifrastarfsemi en fann hratt mun á sér þegar hún byrjaði að taka Active Liver frá New Nordic.
Svokölluð breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu á áfengi. Fylkingin hefur miklar áhyggjur af fyrirhugaðri áfengissölu í Hagkaupum sem á að hefjast á næstu dögum.
Þær Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir og Hansína Guðmundsdóttir eru báðar klínískir dáleiðendur og sérfræðingar í Hugrænni endurforritun frá Dáleiðsluskóla Íslands.
Hvert nikótínveldið á fætur öðru ryður sér rúms í höfuðborginni á sama tíma og sífellt fleiri nota slíkar vörur. Foreldrar lýsa yfir miklum áhyggjum af þróuninni og kalla eftir þjóðarátaki.
Maren Brynja Kristinsdóttir segir mikilvægt að fólk þekki einkenni kulnunar og bregðist við áður en rauðu flöggin verði orðin of mörg. Maren varð sjálf orðin mjög lasin án þess að átta sig á því og lýsir því í Íslandi í dag hvernig einkennin voru farin að ágerast.
Ný norræn næringarviðmið voru gefin út nýlega. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, verkefnastjóri næringar hjá embætti Landlæknis og næringarfræðingur, segir ekki miklar breytingar frá fyrri ráðleggingum. Það séu hærri viðmið um D-vítamín á Íslandi og að í nýjum ráðleggingum sé lögð meiri áhersla á að borða meira úr jurtaríkinu og minna rautt kjöt til að minnka kolefnisspor mataræðis. Jóhanna ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
„Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlkurnar okkar fyrir óraunhæfum viðmiðum um útlit. Drengirnir okkar eru líka í hættu.“
Þegar kemur að hreyfingu eru margir sem velja að hlaupa en það hefur líka lengi verið tengt við marga heilsueflandi ávinninga. Sumir hlaupa því fyrir heilsuna, aðrir sér til skemmtunar, einhverjir til þess að svala keppnisþörf og eflaust nokkrir sem gera það fyrir allt þrennt.
Hjólreiðakeppnin Grefillinn fór fram síðasta laugardag. Þetta er fjórða árið í röð sem keppnin er haldin en um er að ræða svokallað gravel mót en þá er hjólað á malarvegum.
Sálfræðingur segir nýjar sölusíður líkt og Temu og Shein sem nýlega hafa rutt sér til rúms hér á landi hæglega geta orðið til þess að valda kaupfíkn. Síðurnar herji á notendur sem upplifi vellíðan við að versla sem mest á síðunum.
Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið sjaldgæfa erfðabreytileika sem auka áhættu á Parkinsons-sjúkdómi. Erfðabreytingarnir draga úr virkni erfðavísisins ITSN1 sem rannsakendur telja að hafi áhrif á meinmyndun sjúkdómsins. Talið er að vegna uppgötvunarinnar gæti verið hægt að þróa lyf við sjúkdómnum.
Diljá Jóhannsdóttir er hætt að njóta þess að fara út að borða og þarf auk þess að borga miklu meira fyrir matvöru en aðrir. Hún er með sjálfsofnæmissjúkdóminn Selíak en eina meðferðin er algjörlega glúteinlaust fæði. Kristín Ólafsdóttir fór í sérstaka verslunarferð með Diljá í Íslandi í dag.