Lýsing
Miklaborg kynnir: Borgartún 24. Eign 510 er 117,1 fm á 5. hæð með stæði í bílageymslu B22. Gólfsíður horngluggi í stofu sem snýr út á Borgartún. Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi, sér þvottahús, 2 svefnherbergi, eldhús og stofu með glæsilegum hornglugga. Möguleiki er að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað stofu.
Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni. Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar nærri helstu atvinnusvæðum og útivistarmöguleikum.
Um er að ræða 64 íbúðir, sem eru í mismunandi stærðum, 2ja herbergja til 4ra herbergja íbúðir í sjö hæða nýbyggingu við Borgartún, 105 Reykjavík.
Íbúðum er skilað fullbúnum með öllum gólfefnum; Baðherbergi og þvottahús með flísalögðum gólfum og baðherbergi eru með flísalögðum veggjum upp að lofti á a.m.k tvo vegu. Harðparket er á öðrum gólfflötum ásamt hvítum gólflistum. Í lyftuforrýmum að innan eru veggir sandspartlaðir og málaðir. Í stigahúsum verða veggir spartlaðir og málaðir. Veggir og loft í bílageymslu verða grófviðgerðir og rykbundnir með glæru efni. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla- og vagnageymslu verða lökkuð. Lagnir verða sjáanlegar í loftum í geymslum.
Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu.
Borgartúnið iðar af mannlífi og er steinsnar frá helstu menningarviðburðum borgarinnar.
Eignir eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veita:
Móeiður Svala Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali sími 899-8278 eða moa@miklaborg.is
Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is